Boltakort
Boltakort sem henta öllum
Hægt að kaupa í Hraunkoti
Einnig er... Lesa meira
Opnunartími
Opið er alla virka frá
kl. 09:00 til 22:00
Á laugardögum og sunnudögum...
Æfingaplan 2010-2011
Hér geturðu kynnt þér
æfingaplan Keilis fyrir
veturinn 2010-2011.... Lesa meira
| Um Hraunkot |
|
Keilir hefur yfir að ráða nýju og glæsilegu æfingasvæði af fullkomnustu gerð. Æfingaaðstaðan er staðsett þar sem áður var Sædýrasafn Hafnarfjarðar. Aðstaðan er eins og best verður á kosið, glæsileg inniaðstaða með 18 holu púttvelli. Þar er einnig aðstaða til að æfa stutt nákvæmishögg. Á svæðinu er nýtt æfingaskýli með 20 básum til að slá út á neðri hæð, tveir básar eru til viðbótar sem eingöngu verða notaðir fyrir sérkennslu. Í þeim verða tæki af nýjust gerð til golfkennslu. Á æfingasvæðinu er 350 m2 púttflöt og mjög góð aðstaða til að æfa stutta spilið. Kylfingar geta slegið þarna allt að 100 metra löng högg inn á flöt. Sandglompur eru til staðar svo kylfingar geta nú æft á sama staðnum flest allar tegundir golfhögga. |


